Gildi
Vinátta
- Við erum fyrirmyndir og leggjum okkur fram við að vera besta útgáfan af okkur sjálfum.
- Við temjum okkur að tala við hvort annað en ekki um hvort annað.
- Við erum hvetjandi og hrósum og bregðumst alltaf við neikvæðri hegðun.
Virðing
- Við berum virðingu og erum umburðarlynd fyrir ólíkum viðhorfum og skoðunum annarra.
- Við leggjum áherslu á traust og samvinnu og erum heiðarleg í samskiptum.
- Við fögnum margbreytileika og komum til móts við ólíkar þarfir og áhugasvið einstaklinga og hópa.
Gleði
- Við temjum okkur jákvætt hugarfar.
- Við vinnum út frá að Bólið sé fyrir alla og að öllum líði vel innan veggja þess.
- Við leggjum mikla áherslu á unglingalýðræði og jákvæða liðsheild.
- Við nálgumst fræðslu mikið í gegnum leiki og á jafningjagrundvelli.