Bólið logo Mosinn Logo

Vinátta - Virðing - Gleði

Foreldrarölt

Það eru margar góðar ástæður fyrir því að foreldrarölt er gott, mikilvægasta ástæðan er þó sú að okkur er ekki sama. Okkur er ekki sama um hverfið okkar og okkur er ekki sama um hin börnin. Við viljum fyrirbyggja að unglingar lendi í vanda og við viljum koma í veg fyrir hópamyndanir eftir að útivistartíma lýkur.

Góður andi í hverfinu hefur góð áhrif á öll börnin  sem í því búa. Hópamyndanir, einelti, ógnandi hegðun og slæm umgengni hefur áhrif á skólabraginn og alla krakkana í hverfinu. Það er hlutverk okkar, fullorðna fólksins, að gera það sem við getum til að öllum líði vel í þessum frábæra bæ okkar.

Með því að taka þátt ertu að hafa áhrif á hverfisbraginn og það félagslega umhverfi sem börnin í hverfinu, þín börn þar með talin, búa í.

Því færri sem nota vímuefni, leggja í einelti eða beita ofbeldi því betra og öruggara er hverfið okkar.  Við berum öll ábyrgð á okkar nánasta umhverfi og við eigum að sýna þeim sem eiga í vanda að okkur sé ekki sama. Með því að vera sýnileg getum við því brotið upp óæskilegar hópamyndanir sem huganlega gætu haft áhrif á þitt barn.

Gengið er:

  • Á föstudagskvöldum frá Lágafellsskóla, Varmárskóla og Helgafellsskóla.
  • Röltið hefst kl. 21:45 og miðað er við að það taki rúman klukkutíma. 

Við höfum fulla trú á að með þessu sameiginlega átaki náum við að tryggja góða ungmennamenningu í Mosfellsbæ.

Nánari upplýsingar eru á Facebook-síðunni, þ.m.t. dagskrá röltsins. Hægt er að hafa samband við emmairen[hja]mos.is varðandi foreldraröltið.

 

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira