Klúbbastarf
Bólið býður upp á fjölbreytt klúbbastarf þar sem að unga fólkið okkar fær að njóta sín. Í boði eru:
Starfsmenn Bólsins sjá um klúbbastarfið. Hér fyrir neðan getur þú fundið hina ýmsu klúbba og allt um þá!
Hafðu samband við okkur
Ef þú hefur áhuga á að vera með komdu þá í LágóBól, VarmáBól eða HelgóBól og skráðu þig!
Ef þú hefur einhverjar spurningar ekki hika við að hringja í 566-6058 eða senda póst á bolid[hja]mos.is.
Hinsegin Klúbbur
Hinseginklúbbur Bólsins er fyrir öll á aldrinum 13 – 16 ára sem hafa áhuga á hinsegin málefnum. Markmiðið er að gera vettvang þar sem öll geta verið þau sjálf og fræðst frekar um þessi málefni.
Öll eru velkomin í klúbbinn og geta tekið þátt í þeim viðburðum sem haldir eru. Við hittumst annað hvert fimmtudagskvöld kl. 19:30 – 21:45. Fyrstu opnanir verða 19. og 26.september, eftir það verður opið annan hvern fimmtudag.
Þar eru í bland, afslappaðir hittingar með t.d. umræðu-, lærdóms-, spila- & bíókvöldum. En einnig förum við í heimsóknir til annara samtaka og fáum til okkar alls konar fræðslu.
Umsjónarmaður klúbbsins er Elísa Ósk Níelsdóttir, elisan[hja]mos.is